Hljómsveitin Ensími fagnar 30 ára starfsafmæli með tónleikum í Bæjarbíó, 13. mars 2026. Sveitin hefur gefið út sex breiðskífur á ferlinum ásamt fjölda laga á hinar ýmsu safnplötur. Liðsmenn hafa einnig verið áberandi í íslensku tónlistarlífi um árabil með helsta tónlistarfólki landsins. Ensími mun leika vel valin lög af öllum plötum sveitarinnar og aldrei að vita nema sveitin muni bjóða upp á nýmeti í tilefni dagsins.